26janúar

ofurpatrý Svönu

Okkur ar boðið í ofurpartý Svönu sem er stjúpdóttir tengdapabba fyrir ykkur sem ekki vitið. Svana var að útskrifast með 9.5 úr viðskiptafræði HR og er eina viðskiptahjúkkan sem vitað er um en það verður líklega nóg að gera hjá henni við að setja plástur á öll viðskiptasárin í þjóðlífinu.
Við keyrðum Arnari til Jonna vinar síns áður en við fórum, mættum auðvita of seint því við horfðum á leikinn á laugardaginn, ekki má maður nú missa af svoleiðis.
Við vorum að spá  í að við þekktum enga vini Svönu og fjölskyldu svo líklega væru fáir sem við þekktum nema fjölskyldan, sem er nú svosem nóg því við hittumst ekki oft.
Fyrsta fólkið sem við hittum var svo foreldrar Jonna vinar Arnars sem eru mikið útivistarfólk og endaði kvöldið með því að þau skráu sig í Laugavegsgöngu sumarsins.
Þetta með Laugavegsgönguna er nú ekkert smá fyndið því að Stebbi og Erla vinir okkar hafa suðað í okkur síðustu ára að fara með okkur Laugaveginn og í hittifyrra þá komust þau ekki því þau áttu sumarhús á Spáni og voru þar. Í fyrra fór ég með þjálfara Söndru, svo hópurinn var ekki á mínum vegum og þau komust ekki með en komu bara með okkur Strútsstíg í staðinn. Þau tóku loforð af okkur að fara nú eina Laugavegsgöngu með þau og vini þeirra 2010. Vinnufélagi Péturs var líka farin að suða svo að við slógum til og skelltum í eina göngu í lok júlí en viti menn........................ þegar ég hringi í Stebba og Erlu til að vita örugglega hvort að dagarnir pössuðu ekki þeim örugglega þá kom bara þögn í símann og............................. eftir þónokkra stund stundu þau upp að fjölgunarvon væri hjá þeim  í lok júlí.......................... þannig að ég er að fara Laugavegsgönguna þeirra en bara án þeirra :o/

En.... aftur í partýið. Þar vara bara gaman og hittum við bræður Péturs, frændur og frænkur svo að þetta var hin besta skemmtun. Ég varð eftir þegar Pétur fór að spila á Spot kl 23.30 enda var  þetta á Suðurlandsbrautinni og bara að skella sér niður brekkuna. ég fór úr partýinu rúmlega 02 og rétt kíti við í einu húsi í hverfinu því það var þorrablót Þróttar og fólk að koma heim. Alltaf fínt að fá smá þorramat fyrir svefninn............. enda bara gott því ég fór Gullfoss Geysir á sunnudeginum kl 9.
Ég var svo að guida í gær og á fundi í dag en nú er rólegt framundan. Reyndar hrossakjötsveisla á morgunn og hádegisverður með vinkonu minni svo þið sjáið að það er nóg að gera þegar vinnan slítur ekki í sundur frístundirnar fyrir manni.

Sandra kíkti smá við í dag en hún keypti miða eftir mánuð til Portugal með norska liðinu sínu og fékk að vita í dag að hún fengi frí í vinnunni..... þannig að hún var kát.
Arnar tók sér frí frá fótboltanum, hann er að missa stórutásnögl og eitthvað orðin leiður..... þannig að nú er lífi ekki fótbolti eins og alltaf.....spurning hvað hann vill æfa??
Knús í bili

p.s
smá fyrir Kalla.
Hitti dætur Svönu í partýinu.
Kristín er hér núna en annars býr hún í Noregi, hún er hér með 2 mánaða barn því að þegar hún fór út eftir jólafríið þá hafði sprungið rör í íbúðinni hennar úti og þar var kominn sveppur svo hún kom strax aftur.
Gurrí er kominn með kærasta og er í sama skóla og Sandra var í.
Kolbeinn kapteinn verður 75 í vikunni og ætlaði kannki að halda teiti.... sagði Kristín en hann sagðist ekki vera viss hvað hann ætlaði að gera á afmælinu, ætlaði að heyra í Þórir Birni sem verður 55 ára einnig þennan dag,
26. janúar 2010 klukkan 21:42
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
20janúar

enn rólegt en þó vinna

Hér eru bara rólegheit, sótti samt hóp af norskum löggum í dag sem ég dýfði í baðið bláa og ætla svo með þau í leiðindar veðri á morgunn Gullfosshringinn.
Það er líka búið að bjóða okkur í ofurpartý á laugardaginn hjá Svönu sem er stjúpdóttir tengdapabba. Hún er að halda upp á skólalok hjá sér og eitthvað fleira skemmtilegt. Þannig að maður missir ekki úr helgi þessa dagana. Kíkti í heimsókn til vinkonu minnar síðustu helgi sem endaði með nokkrum léttvín og svo kíktum við niður í bæ á milli 04 og 05 svona þegar ég átti að vera komin í rúmið....... sagði Pétur Ég var samt hress að guida daginn eftir og höfðum við mikið gaman af þessu öllu.
Við fórum í matarboð í gær til Siggu sem var með veislu í tilefni þess að norðanliðið var í bænum, pabbi og mamma að koma að jarðaför og Klara búin að vera hjá lækni í smá skoðunn sem allt gekk vel í.
Við systur vorum búnar að rússa í bæinn og skoða ýmis verð á íslenskum tískufatnaði.......
Sandra er á fullu núna að reyna að komast með norska sleggjuþjálfaranum sínum til Portugal en 'IR fer ekkert í æfingarferð þessa páska vegna þess hvað ferðin yrði dýr. Það er mót í Frakklandi í mars sem hún stefnir á að taka þátt í,  þetta er sterkt mót á heimsvísu og hún vill vera nálægt sínu besta ef hún fer.
Arnar er eitthvað leiður á fótboltanum núna, mórallinn er sýnilega ekkert sérstakur og æfingartíminn kl 19 svo minn maður er ekkert að missa sig úr ánægju.
Jæja best að sofa smá og mæta slétt í lögguferðina
20. janúar 2010 klukkan 23:08
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
14janúar

ekkert að frétta...

Hér er bara rólegheit, sótti 12 norðmenn í dag og baðaði þá í Bláa Lóninu. Er að fara Gullhring á morgunn með 33 rafvikkja sem komu vel dúðaðir í dag því það er búið að vera svo kalt hjá þeim greyjunum.
Hitt einhvern svaka sætann norðmann í BL sem er gamall landsliðsmaður í fótbolta og var hann að koma til landsins til að kíkja á einhverja tilvonandi fótboltasnillinga. Þessi hópur sem ég náði í í dag á alveg eftir að mála bæinn rauðann sýndist mér.....svo sjáum við til hvernig gengur með rafvirkjana.... þeir eru jú alltaf í stuði.
Bona notte, er semsagt farið að langa til Ítalíu
14. janúar 2010 klukkan 22:28
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
10janúar

jólin búin og.......................

Hér var jólaskrautið rifið niður í vikunni og ryksugað út í öll horn enda komin ló ......
Það er bara ár þangað til ég fæ að taka jólaskrautið upp aftur en ég keypti smá nýtt skraut sem ég var ótrúlega ánægð með svo nú hlakkar mig til í tæpt át þar til ég tek þetta upp aftur.
Verður alltaf hugsað til vinkonu minnar sem geymir skrauti sitt í fóðruðum skókössum sem hún er búin að dúlla við síðustu árin, þ,a s hún hefur dúllað við að fóðra kassana að innan.............ég veit ekkert hvort að skrautið er eitthvað merkilegt.
Annars endaði helgin með því að ég vann alla helgina, átti að vera í fríi á laugardaginn en hópurinn vildi endilega fá mig sem guide þó að þau ættu að fara jeppaferð með driverguide.
Ég fór með þau á fimm jeppum í mígandi rigningu og þar sem að við komumst ekki í aðminnilegt offroad  vegna hálku og vatnsflaums á hættulegum vegum þá enduðum við upp á Langjökli og vorum svo sein niður að þau sáu Geysir bara í myrkri við vasaljósaskímu........................en þau voru yfir sig ánægð með ferðina svo að það var bara frábært enda aðal karlanir búnir að koma þrisvar og höfðu aldrei fengið aðmillilegan jeppatúr fyrr en núna.
Ég er svo í frí fram á fimmtudag en þá kemur nýr hópur eða réttara sagt verð ég með tvo hópa næstu helgi, verð að vinna flestar helga í jan svo það er þónokkuð að gera.
Er með matarboð á  morgunn fyrir fólkið sem æfir svo mikið og hina sem ég er búin að ætla að bjóða í meira en eitt ár.................... þið sjáið að það er bara drift í gangi.
Annars á Kalli afmæli í dag og fær afmæliskveðjur þar sem að hann er mjög dyggur bloggarlesari, allavega sagði Péturm það því að hann hringdi í Kalla og gat ekki sagt honum neinar fréttir því hann hafði lesið allt á blogginu...................
knús A
10. janúar 2010 klukkan 22:46
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
07janúar

svínaflensusprauta

Við Arnar fórum í svínaflensusprautu í gær og svo á útsölur. Hann keypti sér buxur fyrir peningin frá Kolla afa og Kristínu svo splæsti mamma gamla öðrum buxum á strákinn sinn.
Í dag var kappinn orðin veikur og náði ég í hann í skólann en hann er nú að hressast, þetta hafa líklega verið væg flensueinkenni en ég er með smá beinverki og nenni ekki í æfingar. Heldur eyddi ég kvöldinu í að afmá jólin á meðan Pétur horfði á rassa í World Class.
Ég náði í hóp í dag og fór smá í Bláa Lónið, hestaferð á morgunn og brottför á sunnudaginn, líklega fer jeppakarl sem guidar þau á laugardaginn með þau í jeppaferð Gullfoss Geysir svo að ég stefni á útsölur með Söndru.
Bless í bili
07. janúar 2010 klukkan 23:27
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
04janúar

komin heim út bústað

Við dröttluðumst heim í gær, áttum að skila bústaðnum kl 12 en þá vorum við ekki vöknuð svo að við tókum okkur bessaleifi og fórum kl 16 enda engin traffic á veturna í bústaði. Imba tengdó reddaði okkur bústað því að allir voru farnir út frá RSÍ. Við vorum svo sein að athuga þetta því að við héldum að það yrði negin stemming að fara í bústað ef Kalli og co kæmu ekki með en Sandra og Arnór vildu koma með svo að við fórum í að redda þessu á síðustu stundu.Höfum haft það gott með miklum byrðum arf kókapuffsi og snakki í bland við margt annað gott og ekki var nú hangikjötið neitt slæmt heldur, hefur sjaldan verið betra held ég.

Pétur hefur ekki mættí vinnuna frá því fyrir jól svo að hann er vel úthvíldur og sprækur, við erum reyndar búin að horfa á eitthvað eða spila fram til kl 04 og höfum vaknað kl 12 svo að það þarf að snúa lífinu í kvarthring til að allt komist í samt lag aftur. Arnar byrjaði í skólanum í dag og ég er búin að þvo 6 þvottavélar þannig að lífið er kominn í vanaganginn.
Annars vorum við dugleg að fara í göngutrúr í bústaðum og Kobbi og Sólrún kíktu í heimsókn, bæði í göngutúr og mat svo við sáum annað fólk en bara okkur fjölskylduna.
Er að fara að guida á fimmtudaginn en er annasr að fara að skipuleggja "páskapartýið okkar skólasystra" er að hugsa um að hafa það aðeins fyrir páska þetta árið....... en mamma á afmæli í mars og heldur upp á það 20.mars er því ekki kjörið að hafa partý á föstudeginum á undan????...... jú jú stefni að því og ætla að leigja bústað í Varmahlíð.
Annars allt í góðu hér og ég óska ykkur Gleðilegt nýs árs, sendi ykkur áramótakveðju en hún komst bara til nokkura í SMS formi því að aðrir virtust ekki hafa fengið kveðju frá mér..... sorry símakerfi eitthvða að klikka.
04. janúar 2010 klukkan 12:11
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
29desember

leti

Erum búin að hafa það hrikalega gott, höfum alveg snúið sólarhringnum við. Horfum á imbann til kl 2-3 eða kíkjum í heimsóknir sem dragast á langinn. Svo vöknum við eldhress kl 12 og förum kanski í ræktina.
Erum samt búin að hafa Kalkúnarveislu, kalkúnn eldaður í fyrsta skiptið og tókst mjög vel, smá atriði sem við þurfum að lagfær fyrir næsta skipti. Svo var bollukaffi í dag og fiskisúpa og ýmislegt góðgæti í gær með vinum okkar.
Var boðin í kvennapartý í gær kl 14 og rétt náði að vakan og fara í æfingar áður en það hófst. Sú kona sem bauð hafði fengið 5 ostakörfur í jólagjöf, eða réttara sagt fjölskyldan hennar svo að við hjálpuðum aðeins til og drukkum smá snafsa með þannig að ég eldaði fiskisúpuna á met hraða rétt áður en gestirnir komu.
Sandra og Arnór hafa verið hjá okkur þar til í gærkveldi en þau hafa verið dugleg að æfa. Arnór vara ð keppa í gær og var í öðru sæti, Sandra á að keppa á gamlárs.
Ætlum að horfa  stúlkuna sem lék sér að eldinum núna þannig að bless í bili
29. desember 2009 klukkan 21:23
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
21desember

smá fréttir

Hér er nú allt í rólegheitum og klippingin tókst svona líka vel, er eins og strákur öðru megin og kona hinu megin svo ég er með tvær hliðar núna.
Fór norður fyrir viku og kom til baka á föstudagskvöldið. Ég heimsótti alla og át smákökur frá öllum svo nú er norðanlið við bakstur. Það var voða gaman að hitta alla þó að fólk hafi verið misjaflega upptekið eins og gengur.
Ég fór svo strax á föstudagkvöldið í jólabaðið hjá Sólrúnu vinkonu minni en það er pottaferð Deluxe með rauðvíni og allt. Það var aldeilis notalegt.
Á laugardaginn fórum við svo niður í bæ og hittum Guinnesliðið, þau hittust fyrst í heimahúsi og snöfsuðu sig vel en við hittum þau svo í bænum og röltum á nokkra pöbba með þeim. Vi vorum komin heim um kl 22 og mættum fersk í æfingar á sunnudeginum. Fórum svo smá í Kringluna mest til að dúlla okkur aðeins. Gærkvöldið endaði svo með stórmyndinni Avatar sem var rosa skemmtilega en við fórum þrjú(Sandra fór með Arnóri sínum) Þetta er þriggja tíma mynd og hverrar mínútu virði. ´
Í dag hafa veið heimsóknir en ég var að koma úr þessu dásemdar nuddi sem mínar frábæru systur gáfu mér í afmælisgjöf. Þetta var baaaaaaaaaaaaaaaara frábært og gott.
Er að skreppa í smá pakka leiðangur
knús í bili
21. desember 2009 klukkan 20:18
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
10desember

jólakortin farin til útlanda

Jólakortin til útlanda komust loks í póst í dag, búin að skrifa jólabréf á íslensku, norsku og ensku(Sandra fór yfir þetta allt fyrir mig svo þetta er vonandi í lagi)
Súkkulaðibitakökurnar eru búnar og kanski geri ég aðra uppskrift í kvöld eða á morgunn.
Er að guida á mogunn.......samt er mesta tilhlökkunin að komast í klippingu þó að allir segi að hárið á mér sé rosa flott akkurat núna(Reyndar sagði svipurinn á fólkinu sem var í æfingum þegar ég mætti að hárið á mér væri ekki til fyrirmyndar :o/
Sandra fer líka í klippingu og ætlar að fá eitthvað nýtt svo að þetta verður spennandi.
Annars var ég að koma úr jólaglögg hjá einni ferðaskrifstofunni, hitti marga og fékk far heim með einum sem var í sjokki því að í vinnunni hans hné niður einn kúninn og dó á mánudaginn, hann reyndi endurlífgunn lengi en ekkert gekk svo að karl greyið var í sjokki.......sko þessi sem reyndi endurlífgunina.... hinn dó.
Jæja ætla að skella í nokkrar kökur og fá mér rauðvín með ætli það virki ekki alveg eftir jólaglöggið
10. desember 2009 klukkan 21:41
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
07desember

búin með jólagjafirnar

Skransaði í bæinn í dag og setti vetrardekkin undir bílinn og fór svo í jólagjafaleiðangur. Keypti það sem ég átti eftir að kaupa og aðeins meira eins og venjulega. Það verður gestagangur hér á morgunn og svo þarf ég að pakka inn jólapökkunum fyrir helgina til að ég geti tekið þetta allt norður á sunnudaginn en þá er stefnt á norðurferð hjá mér. Við ætlum í leikhús annað kvöld að sjá Dauðasyndirnar svo er jólaglögg á fimmtudaginn og jólahlaðborð og skemmtun á laugardaginn þannig að prógrammið er ekkert sérlega þétt þessa dagana.... bara allt í rólegheitum og ég eitthvað byrjuð á jólabréfum og svoleiðis...... sem gengur hægt.
Sandra kíkti við og er eitthvað smá tognuð aftan í læri þannig að æfingar eru í lágmarki en Arnór er á fullu í prófum. Karlarnir mínir hér heima eru bara slakir....... líklega er Pétur farið að hlakka til jólakortaskrifanna en ég er búin að lofa honum rauðvíni og allt.........
07. desember 2009 klukkan 22:46
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alda Jónsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Um mig: Er kona á besta aldri á manninn Pétur og tvö börn Söndru og Arnar. Vinn sem leiðsögumaður fyrir norðmenn og sem fararstjóri. Hef ýmis áhugamál; ferðalög innan lands og utan ásamt lífinu sjálfu og samskiptum við fólk. Á 13 systkyni og marga vini sem ég reyni að sinna eftir bestu getu.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...