20maí

Hæ hæ öll

Jæja þá er komið að því að sú gamla er farin að blogga. Þessi hugmynd fór af stað þegar Sandra dóttir mín fór til Noregs og svo langar systkynahópnum mínum 13 manns að fylgjast með þegar ég er á þessu flandri mínu um ókunn lönd. Nú færð þú Sandra mín að fylgjast með lífinu í kotinu og þið hin getið kannað hvar ég er stödd þegar þið hugsið til mín.
Sandra lætur bara vel af sér í Løten í Noregi þó að hún sé bara búin að vera 2 daga en hún ætlar að vera í æfingarbúðum hjá norskum heimsmeistara í sleggjukasti í sumar.
Ég var ekkert að guida í dag og skrapp á Esjuna upp að Steini á 50.mín sem er fínn tími hjá mér. Fór svo í Bílanaust sem heitir N1 í dag og keypti dót handa Pétri, háþrýstidælu og ýmislegt á loftpressuna okkar sem stóð í bílskúrnum alveg berstrípuð. Ég ákvað svo á heimleiðinni að gefa honum þetta bara í afmælisgjöf það er eins og við konur fengjum eldhúsáhöld á afmælisgjöf.........ja!!! sumt væri maður jú bara ánægður með að fá. Ég kaupi svo eitthvað skemmtilegt handa Pétri mínum í útlöndum í sumar.Ég gat auðvit ekki beðið með að leyfa honum að hafa dótadag og afhenti honum herlegheitin................ þvílíkt sælubrosHissa og ég náði að finna út úr þessum litlu samtengingum á loftpressuna svo að ég klúðraði engu og hann gat farið að pumpa í dekkin á hjólinu sínu og nota nýja dótið sitt.Eftir þetta allt saman skrifaði ég sögu um Örlygsstaðabardaga og slappaði aðeins af og heyrði í Klöru sem sagði nýjustu sauðburðartölur 35 eftir en þar af voru 5 að bera þegar ég talaði við hana svo að þessu fer að ljúka.Segjum þetta gott í biliUllandi
20. maí 2008 klukkan 21:25
Alda Jónsdóttir
4 athugasemdir

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alda Jónsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Um mig: Er kona á besta aldri á manninn Pétur og tvö börn Söndru og Arnar. Vinn sem leiðsögumaður fyrir norðmenn og sem fararstjóri. Hef ýmis áhugamál; ferðalög innan lands og utan ásamt lífinu sjálfu og samskiptum við fólk. Á 13 systkyni og marga vini sem ég reyni að sinna eftir bestu getu.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...