16maí

allt í fína hér

Allt gengur bara vel hér nema akkurat að skrifa þetta blogg því að ég er búin að reyna þrisvar og bloggið vistast ekki svo að ég byrja einu sinni enn..........
Þetta var fyrsta fríhelgin hjá Pétri og nú heldur hann að allt snöfl sé búið eftir framkvæmdirnar og notaði hann helgina í að hitta félaga , skoða í hljóðfærabúðir og eitthvað skemmtilegt.
Annar situr hann með bassann núna og æfir sig því að Gummi Jóns ætlar að fá hann og annan gamlan vin sinn til að spila af sólóplötunum hans og er meiningin að spila á rólegheitastöðum enda þetta rólegheita músik. Þeir eru ekki búnir að hittast allir en það skeður fljótlega. Þetta er fín áskorun fyrir galma minn að gera eitthvað skemmtilegt.

Ég fór mað Arnar og árganginn hans í útskriftarferð á Snæfellsnesið og gekk þetta mjög vel með 70 krakka en við vorum fjögur fullorðin.
Svo hefur Arnar verið að taka ökutíma og er núna í ökuskóla 1 að læra um umferðarmerkin og eitthvað svoleiðis. Ég keyrði hann áðan í ökuskólann og náði að keyra á móti einstefnu svo að við gátum hlegi aðeins yfir þessari góðu fyrirmynd.
Sandra er grasekkja þessa dagana því Arnór er í æfingarferð í Portugal en þau fengu að vita í síðustu viku að Arnór kemst inn í skólann sem að hann sótti um í Köben svo að þau flytja til Danmerkur í ágúst en skólinn byrjar 31. ágúst. Sandra ætlar að ver í fjarnámi frá HÍ en hún er búin að fá vinnu á Hagstofunni í sumar svona þegar skólinn er búinn sem að hún er að vinna í núna.

Það er búið að vera fínt að gera hjá mér en ég verð hinsvegar ekki að vinna svona brjálað eins og í fyrra því að ferðaskrifstofan sem að réð mig í fyrra missti allar ferðirnar til annarar sem að undirbauð og þar sem að ég sagði einum af  toppunum þar að hann væri vitleysingur....... þá fer ég ekki að vinna þar enda borga þeir frekar illa og því bara gott að vera heima og fá þá betur borgað en að fara fleiri ferðir og fá lítið fyrir daginn.
16. maí 2011 klukkan 22:41
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
02maí

sorry lagt síðan síðast

Já það er langt síðan síðast.
Hér er allt á blússandi siglingu, búin að jafna garðinn og sléttaúr öllum haugunum, það á eftir a sá og bíðum við eftir að þetta þorni aðeins og já kannski að snjórinn fari:O)
Pétur eyddi helginni í að ganga frá við eldhúsofninn og einnig rörunum sem eru niðri í tröppunum.
Hann var svo reyndar að spila í afmæli á laugardaginn....... ekki alveg uppáhaldið að spila með partýtrúbadorum í pratýi þar sem hann þekkir ENGANN þegar hann er búin að vera að spila með alvöru hljóðfæraleikurum.
Annars hefur verið ágætt að gera hjá mér og verið farnar allskonar ferðir fyrri allskonar ferðaskifstofur..... mikil breidd í þeim efnum og útlit fyrir að ég verði ekki að vinna jafn mikið og síðasta sumar..... þær ferðir virðast hafa dreifst á fleiri ferðaskirfstofur núna og því fleiri en ég í boði sem guidar.
Við fórum norður um páskana og vorum aðallega í klippihugleiðingun, matarboðum og veislu og að hafa það gott.
Þetta gekk allt stórslysalaust nema þegar ég prófaði barnatorfærumótorhjóla hjá systurminni og datt beint á rassinn eftir annan hring og fékk þetta fína sár sem var grunn en  vætlaði  mikið úr. Þetta er samt allt a´góðri leið OG GET ÉG SAGT MEÐ SANNI AÐ ÉG SÉ BARA NOKKUÐ GÓÐ ORÐIN Í RASSINUM:O)
Við Sandra fórum í Smáralindina í gær og var ég lukkudýrið hennar við fatakaup, hún var eitthvað að fara í gegnum fataskápinn hjá sér og fann þá sveppagróður um allt herbergi svo að hún þreif allt og málaði en það þarf örugglega að taka drenið í gegn í því húsi og gluggana líka.
Arnar er svo staddur í fyrsta ökutímanum en hann æfði sig aðeins í sveitinni  um páskana, svona að taka af stað og svoleiðis.
02. maí 2011 klukkan 15:18
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
23mars

framkvæmdir búnar

Nú get ég loks sest niður og sagt að framkvæmdir séu búnar þó að Pétur minn sé alls ekki búin með snövlið sem að hann á eftir.
Það var verið á fullu í pípulögnum alla helgina frá morgni og langt fram á kvöld og þetta hafist allt saman af. Síðan er ég búin að ÞRÍFA allt húsið..... er þá að tala um veggi og allt, allt viðrað eða þvegið nema reyndar ekki það sem er inn í skápunum.
Ég var að klára að skrúbba niðri bæði veggi og gólf. Þurfum að mála þvottahúsgólfið upp á nýtt en áður held ég að ég byðji um smá pússingu á niðurfallinu sem að er ekki nesti punkturinn á gólfinu og það sem verra er að inní hitakompunni er það ennþá verra, þar hefur þeim tekist að klúðra niðurfallinu svo að það er stór bunga á gólfinu.
Það er ekkert að gerast þarna niðri en til stóð að breyta eldhúsinnréttingunni og setja nýtt rafmagn. Heiða býr hjá kærastanum með krakkaskarann og gengur bara vel svo að hún ætlar að klára íbúðina og leigja hana svo.
Annars er ég að guida um helgar .... er að ná í lítinn hóp á morgunn sem að ég verð með um helgina.
Við Arnar fórum í Kringluna á sunnudaginn því að buxurnar hans voru ornar alveg ónýtar.... þannig að við skelltum okkur í buxnakaup...... það er fyrsta fjárfestingin síðan jólagjafirnar voru keyptar..... já og buxurnar sem að ég keypti á 85% afslætti á 3.700kr.
23. mars 2011 klukkan 18:31
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
09mars

afmæli, framkvæmdir og meiri framkvæmdir

Ég var að guida þessa helgina..... loksins eitthvað að gera. Fékk hóp af rafvirkjum á laugardag í Gullfosshring með offroad sem endaði með því að við festum einn bíl af þrem í krapa..... en gátum samt dregið hann upp. Veðrið var leiðinlegt en það átti eftir að vesna á sunnudeginum  en þá fór ég með ellefu ferðaskrifstofukonur sem ætla að fara að selja kvennaferðir til Íslands. Við fórum óvanalega ferð með ísklifri á Langjökli og keyrðum inn í Þórsmörk hálfa leiðina til að skoða Geitlandsjókulinn sem svo mikið var talað um í Eyjafjallagosinu fræga.
Við enduðum daginn á humarveislu á suðurlandinu.
Ég prófaði ísklifur og var það rosa gaman svona í fyrsta skiptið og ekki eins erfitt eins og þær létu í veðri vaka, allavega var ég skotfljót upp á broddunum með ísaxirnar á lofti :O)

Annars átti Arnar afmæli á föstudeginum og Pétur bjó til pizzu og ég gerði súkkulaðiköku. Það komu 7 strákar og voru hér til kl 01 við að horfa á eitthvað skemmtilegt. Það kom svo annar strákahópur á laugardagskvöldið til að Lana og voru þeir að fara að sofa kl 8 á sunnudagsmorguninn þegar ég fór í vinnu.......gaman hjá þeim.

Ég fékk hringingu í síðustu viku með beiðni um að skoða bíl fyrir Thelmu dóttir Möggu sys, ég var komin í æfingar þegar maðurinn með bílinn lét sjá sig svo að ég skaust út í hríðargarran og skoðaði bílinn, prufukeyrði hann og skrifaði svo undir pappírana. Ég lofaði norðanfólki að fara með bílinn norður eftir helgina og á mánudaginn gekk hér sunnanlands á með stórhríð en ég lagði af stað og veðrið lagaðist þegar á leið  svo að ferðin gekk vel... smá skafrenningur á heiðinni og hrikaleg hálka sumstaðar en ég fór hægt og tók ekki neina áhættu. Ég náði að hitta nokkra fyrir norðan..... í raun ótrúlega marga á miða við hvað ég stoppaði stutt. Gisti hjá Möggu og ætlaði í heimsókn til pabba en hann svaraði ekki svo a ég hringdi aftur daginn eftir og þá náði ég á karli sem að dró mig með sér í heimsókn til Birnu mágkonu, svo kom Klara og sótti mig þangað og fór með mig í teetime í sveitina en þangað komu pabbi og mamma svo að ég sá þau í nokkrar mín áður en ég fór á Krókinn aftur. Ég var búin að fá far með Maju vinkonu minni sem var að fara í fermingarundirbúning suður.

Pétur var alla síðustu helgi  við upptökur og vinnu við söngkeppni framhaldsskólanna..... við erum að tala um að hann fór kl 7 á morgnana og kom til baka um miðnætti. Það tókst samt allt vel hjá þeim, þrátt fyrir að þeir þyrftu nýjan hljóðmann á síðustu stundu því að Daði hljóðmaður var fastur á Grænlandi út af flugvélinni sem brotlenti þar.... hann var samt ekki með vélinni... átti bara að koma með henni heim.
Núna er Pétur að vinna við að rífa niður vegginn úr eldhúsinu og inn undir baðið og til að komast í tengingar.... en það er stefnan að taka helminginn af ofnalögnunum á laugardaginn.
Ég á að vera að vinna alla helgina.... þannig að ég verð ekki fyrir :O)
knús í bili
09. mars 2011 klukkan 18:42
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
05mars

karlarnir farnir

Klóakframkvæmdir kláruðust á mettíma og hér eru allir moldarbingar næstum horfnir.... allavega þarf maður ekki að klofa yfir þá til að komast að húsinu. Ég fékk fullt af vinkonum í heimsókn næst síðasta daginn og stiku'ðu þær yfir ófærurnar á sínum fínu skóm og enginn datt ofan í skurði..... það var svo fyndið að þeim dytti nokkrum í hug að kíkja við á næst mesta framkvæmdadeginum.
Við settum trén niður í gær því að sólin skein svo glatt að ég vildi ekki hafa þau  inn í miðjum garði með ræturnar upp úr lengur.
Svo rignir hressilega núna svo þetta er allt eftir bókinni.
Pétur fór til London að spila síðustu helgi og gekk það allt rosa vel hjá þeim.... þorrablótið var fínt og ekkert vesen.
Ég fékk mér smá hvítvín með Maju vinkonu minni á föstudagskvöldið og svo ætluðum við út og dansa hrikalega á laugardaginn en hún nennti ekki út þegar til kom ..... þannig að ég var bara frekar stillt sem grasekkja.
05. mars 2011 klukkan 20:18
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
23febrúar

Jeppaferð, klóak og afmæli Siggu

Ég fór að vinna þriðja daginn á árinu á laugardaginn, jeppaferð. Við áttum að taka 29 manna hóp.... það voru 3 smábörn um 6.mánaða. En helmingurinn af hópnum ætlaði upp á Langjökul á snjósleða og hinn helmingurinn í bæinn strax eftir hádegismat.
Allt byrjaði þetta á því að ég taldi 28 í bílana og þau sögðu að þetta væru allt hjón svo að við gætum örugglega farið af stað....... þá kom í ljós að þrír voru efti á hótelinu... þá voru þetta 28 og þrjú smábörn... en ekki 29 alls. Við snérum við og náðum í eftirbátana og fórum upp á Úlfarsfellið svo á Þingvöll í flottu veðri. Eftir Geysir sprakk á einum bílnum og var það risa gat sem þeir tróðum einhverju eins og lakkrísreimum í gatið með sérstakri nál. Við fórum svo á Gullfoss og borðuðum. Helmingur hópsins fór ásamt mér á Langjökul á tveim bílum en hinn helmingurinn ætlaði í bæinn á tveim bílum. Þá kom í ljós að dekkið var ónýtt.... þar fór 150.000 og þurfti að fá nýtt dekk úr bænum. Við fórum upp á jökul og í sleðaferð sem var svo skemmtileg að þau keyptu auka hálf tíma. Þegar við komum loks niður af jökli um kl 17.30 kom í ljós að fólkið sem átti að fara í bæinn komst ekki allt..... þessi með smábörnin voru send á minni jeppanum en hin bara biðu o g biðu..... þar til nýtt dekk kom loks réttum kl 17.
Við stoppuðum ekki lengi og þegar við vorum rétt komin af stað kom hringing frá þessum sem var á undan okkur "Annað dekk ónýtt" þannig að við tókum það fólk með og það endaði með því að við komum auðvita saman í bæinn..... aumingja þau....
Það hefur einu sinni skeð að dekk hafi orðið ónýtt á öllum þessum jeppaferli mínum en aldrei tvö .... og það sama daginn undir sama bílnum..... þannig að þar fór 300.000kall.
Sigga systir hélt upp á afmælið sitt þennan laugardag og ´var búin að byðja mig um að vera veislustjóri..... afmælið byrjaði kl 19.30 og ég kom í bæinn um kl 20....... þannig að það var hraðferð í fötinn og glossið á varirnar svo brunað í Kópavoginn.
Afmælið tólst rosa vel og voru ýmsar skemmtilegar uppákomur.... vinkonur hennar úr skóla, bæði Varmahlíð og Hallormsstað  sögðu frá og sundu, svo sungum við systurnar  heimaferðan brag um Siggu....... nú svo var systkinasýning..... öll níu mætt nema Ingólfur.
Við vorum komin heim um kl 0.30.... hjálpuðum smá við frágang.
Magga og Kári voru hjá okkur með krakkana og vorumvið Magga aldeilis búnar að skransa í búðum á föstudeginum og dressa hana Möggu upp og raunar Thelmu líka. Ég hins vegar hélt dauðahaldi í veskið og eyddi engu...... var með hrikalegt samviskubit yfir því að hafa keypt mér fínar buxur á 85% afslætti á 3.700kr....... enda engu verið að eyða þessa dagana , nú fer allt í að safna fyrir klóakinu.
Klóakframkvæmdir ganga rosalega vel, við tókum tilboði upp á 2.280 mill og svo bætist eitthvað af aukaverkum við. Það eru hér stórar gröfur í garðinum og búið að skipta algjörlega um jarðveg kringum húsið.
Þetta virðist vel unnið og karlarnir fínir svo að e´g dekra við þá með pönnsum og skúffuköku.
Arnór átti afmæli 22 feb og fórum við í rosa veislu í vesturbæinn. Hann fær flottan síma í afmælisgjöf og tökum við þátt í því. Við hittum foreldra Arnórs og áttum notalega stund hjá þeim öllum.
Jæja nóg í bili...... annars er PK á leið til London um helgina að spila á þorrablóti :O)
23. febrúar 2011 klukkan 00:46
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
15febrúar

afmæli og klóak

Já það er framhalda af klóakmálunum...... búnir að vera hér menn að skoða fram og til baka. Fengum tilboð frá nokkrum upp á 2.280 3.3 mill. Við gengum að lægsta tilboðinu og byrja þeir vonandi á morgunn.... voru búnir að lofa að láta sjá sig í dag....... en eins og konan á neðstu hæðinrni segir..."iðnaðarmenn......"
Pétur og Arnar tóku hellurnar hér í kringum húsið um helgina þrátt fyrir snjó og bleytu.
Konan á neðstu hæðinni kom með æskuástina og lét hann hjálpa sér við að taka niður eldhúsinnréttingun.... enda var kærastinn nýbúin að gefa henni bíl og því alveg stikk frír frá þessu.
Annars hafa dagarnir farið í að klára Ítalíuferðina og eru nú þegar 8 sæti farinn en betur má ef duga skal. Kíkið inn á www.italiuferdir.com þetta er virkilega flott ferð.
Ég er líka búin að klára bændaferðina fyrir Noregsmarkað og farin að reyna að lokka norska bændur til að koma hingað í haust í prufuferð.
Pétur spilaði á föstudaginn í söngkeppni Kvennaskólans og gekk það bara vel. Ég fór til vinkonu minnar í heimsókn og kom seint heim smá rauðvínslegin. Við fórum svo í afmæli til Huldu vinkonu á laugardagskvöldið.... sungum og skemmtum okkur. Ég hitti systkini hennar Huldu og mörg þeirra þekktu mig ekki enda ekki séð mig frá því í fyrra eða enþá lengra síðan.....: Siggi Hvammskarl er giftur einni systurinni og það var langt í frá að hann þekkti mig. Ég sagði honum samt eitthvað í fréttum af Pétri og svo Kalla og Auaturríkislífinu.
Annars var ég að guida á föstudaginn ásamt þremum öðrum guidum og fjórum bílstjórum. Við tókum stóran hóp og fórum með  í Bl, í mat, fund og bað..... þar vorum við í marga tíma og margt spjallað. Þar var einn bílstjóri sem ég hef lítið talað við...... hann kallaði mig KERLINGU í SBA partýinu í haust og ég hef alltag grínast í hinum bílstjórunum að ég keyri svo ekki með svoleiðis gaurum...... hef bara ekki lent hjá honum. En þarna í BL spjallinu komí ljós að hann var húnvetningur og meira að segja skólabróðir Kolbeinssonbræðranna.... var í bekk með PK og heitir Svanur...... svona getur veröldin verið lítil.
Veröldin var samt ennþá minni á föstudagskvöldið þegar ég sat í rauðvininu hjá Maju vinkonu minni því að þá hringdi síminn skyndilega og á línunni var maður sem ég þekkti ekki strax.... en þannig var að PK átti að vera á karlakvöldi..... og hafði sagt að hann væri að spila líklega til kl 22 og kæmi þá...... þannig að þeir hringdu í mig til að vera vissir um að ég leyfði honum að fara....... Þegar þetta barst í tal þá segir þessi sem hringdi  sem heitir Atli og er eldgamall skólabróðir PK.... við hringjum í Öldu, er einhver með númerið hennar...... og viti menn það voru þrír í karlapartýinu með númerið mitt..... lítur ekki vel út eða hvað......
Ég lofaði að senda PK þegar hann kæmi heim en sagði þeim jafnframt að ég hefði laumast að heiman. Þeir hringdu svo aftur eftir miðnætti og þá hafði komið í  ljós að nýjasti maðurinn í klúbbnum sem var að mæta í fyrsta skiptið fannst nafnið mitt eitthvað kunnuglegt og jú..... hann býð á hæðinni fyrir neðan. Heimurinn átti enn eftir að minka þegar í ljós kom að hann var í boði vinar síns sem er vinur Maju sem ég var hjá....... já svona er heimurinn lítill...... en Pk kom heim um kl 00 og nennti ekki í karlapartýið en þeir buðu mér í staðinn ..... ég fór nú ekki þó að ég þekkti meira en helminginn.
Núna stendur afmæli Siggu Jónu fyrir dyrum næstu helgi og PK þarf að bora einhver göt fyrri ofnarörum því ég held að þessi eyrrör sem hanga saman að gömlum vana fari alveg þegar þeir byrja að brjóta þarna niðri.
Nóg að gera hér og ég er að fara að guida á laugardaginn alveg annan daginn í mánuðinum.
Knús í bili
15. febrúar 2011 klukkan 23:50
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
09febrúar

klóak og þorrablót

Síðasta vika fór nær eingöngu í að fá tilboð í klóakið, því að rétt eftir að ég bloggaði síðast þá fengum við að vita að klóakið væri í sundur á tveim stöðum og við því að kúka í grunnin. Konan á neðstu hæðinni er flutt út einu sinni enn með krakkaskarann því að parketið er ónýtt á stofugólfinu, annaðhvort út af klóakraka eða út af lekanum frá svalaflóðinu. Ennnnnn ég hitta menn og fleiri menn sem komu og kíktu á þetta. Við fengum svo tilboð frá fjórum pípurum og hljóðuðu þau upp á 2.3-2.7 mill. Við eigum að borga 40% en við fáum endurgreiðslu af VSK sem að muna um..... þannig að við erum að díla við um eina millu.... hvað er það svosem á milli vina.
Við Pétur brunuðum svo norður á þorrablót á föstudagskvöldið.... brunuðum beint í sveitina en það var búið að bjóða okkur í þessa líka frábæru steik.... ég gerði svo alla fína fyrir þorrablótið. Við skruppun því næst í sveitina til mömmu og ég gerði hana fína líka.
Eftir öll þessi fínheit fórum við út á krók til Möggu og átum hjólabandssælu og fínerí svona til að hita upp fyrir þorrablótið.
Við gistum hjá Maju vinkonu minni og vorum búnar að plana partý og allt en.... það var bikarleiku í körfubolta svo að það fór allt út í sandinn vegna sjáonvarpsáhorfs en frændi minn er fyrirliðinn og sonur Maju í Tindastólsliðinu. Við skemmtum okkur samt ágætlega og höfðum það gott þó að við þyrftum að drífa okkur aðeins meira en upphaflega var ákveðið.
Magga og Kári komu til okkar og einnig systir Maju með sinn mann.... og svo auðvita Hulda vinkona okkar.
Þorrablótið var bara skemmtilegt og svo mikið stuð við borðið að við fórum ekkert á flakk eins ogí fyrra að hitta annað fólk og spjalla. Það var dansað heilmikið og meira að segja Pétur bauð mér upp í marga dansa.
Eftir þorrabkótið gengum við heim en skildum þorratrogið eftir í bílnum svo að við kláruðum ekki afgangana en sungum þess meira og skemmtum okkur.
Við fórum að sofa um kl 06....  og er skemmst frá því að segja að ég svaf lítið en var að drepast í maganum. Magga systir sagði að það væri von þar sem að ég hefði drukkið ótæpilega af brennivínssnöfsunum og auðvita trúði ég henni svona fram eftir degi ......en þegar ég var komin með beinverki og hita og Arnar líka með magaverk fyrir sunnan þá var þetta einhver skítaflensa. Ég er samt hætt að lít út fyrir að vera langt gengin með tvíbaura og matarlystin kemur hægt enda þarf maður að vera komin í form fyrir fimmtugs afmælið næstu helgi og svo fertugs afmælið þar á eftir.
Við komum að norðan um kl 20 á sunnudagskvöld og þá fór PK að æfa sig því að núna er hann á æfingu með hljómsveitinni sem að er hætt því að þeir spila undir hjá Kvennaskólanum sem verður með söngvakeppni á föstudaginn.... svo held ég að þeir eigi að spila líka undir í aðal keppninni. Við vorum í lokapartýi hjá Bermuda síðaustu helgi en Gunni trommari verður næstu þrjá mánuði í Kína svo að þeir hafa aðra trommara.
Jæja ekki fleiri skítafréttir í bili
09. febrúar 2011 klukkan 07:05
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
25janúar

fín helgi

Best að byrja á vatnsflóðsfréttum. Kókostteppið þeirra er loks ofðið þurrt svo að það er hætt að anga hér um alla ganga en.................. parketið er ónýtt á neðstu hæðinni, það var skipt um það í des.
Pétur ætlar svo að fara að bora hér fyrir ofnalögnunum.
Ég vann einn dag við að guida og gekk það bara vel eftir langt hlé.
Pétur fór í fínu veðri á laugardaginn til Hafnar i Hornafirði... þeir fóru með Ernu sem söngkonu og þetta var alveg þrusu ball og gekk mjög vel.
Hann var svo komin til baka um miðjan dag á sunnudeginum.
Ég fór á þorrablót með vinkonum mínum og Siggu Sys. Vinkonur mínar komu aðeins hér til mín og við byrjuðum á Campavíni enda langt síðan við höfðum hisst allar þrjár. Sigga kom svo og skutlaði okkur á blótið. Það er ekki frá mörgu að segja nema að það var mjög gaman, gott að borða, mikið sungið  og margt skemmtilegt fólk sem að maður hitti, það voru samt fleiri eldri en í fyrra .... þá á ég ekki bara við þá sem eru ári eldri en í fyrra.
Erling og Hulda ásamt Jóa, Dagnýu, Lenu og Þóroddi voru líka svo að við dönsuðum upp um allaveggi við þá karlana. Það var eitthvað minna um gamla sénsa en í fyrra......
Vi k´ktum svo í bæinn á eftir, Sigga skutlaði okkur og ætluðum við á Thorvaldsen...... þar var svo löng biðröð að eftir 40 mín bil  tókum við taxa heim svo að ekki vorum við okkur til skammar þessa helgina...... Hulda reyndar kom ekki með okkur hún komst inn á undan okkur..... einhver kavaler sem að þreit hana með sér.
Ég bauð svo Söndru og Arnóri í hamborgaraveislu í gærkveldi og var með nokkra vini í hrossakjötsveislu í hádeginu.
Hjólaferðin er að komast á koppinn og verður ekkert svo svaka dýr. Ég er líka að verða búin að gera allt varðandi Vatnaleiðina og Lónsöræfin en það verða gönguferðir sumarsins.
bæ bæ í bili:o)
25. janúar 2011 klukkan 22:01
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
21janúar

vatnsflóð

Það er alveg ótrúlegt hvað konan á neðstu hæðinni þarf að þola hér í húsinu.
'i fyrrakvöld vakti(voruð að festa svegn) hún okkur um 23.30 og sagði að það læki niður um gluggakarminn í stofunni og niður úr loftinu hjá henni . Við snöruðumst upp úr rúminu og kítum á aðstæður.... viti menn allt á floti. Við óttuðumst hið versta að nú væri ofnalögnin OKKar farinn því það á bara eftir að skipta um hana. Ég smakkaði vatnið og það var ekki heitt. Við reyndum að náí fólkið uppi en þar var enginn og lítil svörunn á símum fyrr en LOKs að maðurinn kom heim og þá var málið að svalirnar voru fullar að vatni og búið að leka inn undir svalahurðina og undir allt parketið í stofunni. Þau höfðu ekki sópað svalirnar og því var fullt af laufi sem stíflaði niðurfallið og því fór sem fór. Við jusum öllu vatninu af svölunum og stofugólfinu..... en parketið er ónýtt hjá þeim og það hætti að leka niður.
Ekki var það ofnalögnin í þetta skiptið...... en við erum að fara að byrja á henni líklega næstu helgi. Pétur og hluti af hljómsveitinni ætla að spila á þorrablóti á Höfn...... þeir eru frekar fúlir út í Írisi söngkonu sem er að detta út á síðustu stundu..... frekar halló..
Jæja er að fara að ná í norðmannahóp á eftir og það er búið að byðja mig um nokkrar ferðir framundan svo að þetta er eitthvað að glæðast.
Kveðja ai bili
21. janúar 2011 klukkan 13:41
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alda Jónsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Um mig: Er kona á besta aldri á manninn Pétur og tvö börn Söndru og Arnar. Vinn sem leiðsögumaður fyrir norðmenn og sem fararstjóri. Hef ýmis áhugamál; ferðalög innan lands og utan ásamt lífinu sjálfu og samskiptum við fólk. Á 13 systkyni og marga vini sem ég reyni að sinna eftir bestu getu.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...