afmæli Kára og ýmislegt
Frá síðasta bloggi er helst að frétta að skólahópurinn fór sæll og glaður til Kirkenes sem er alveg nyrðst í Noregi og kvaddi ég þau á fimmtudagskvöldið erftir bað í Bláa Lóninu...... ég fór beint í kvennahverfisboð og var það aldeilis ekki leiðinlegt að hitta þennan hressa kvennahóp og ýmislegt var jú planað.... Viðeyjarferð, basar og næsti matarklúbbur:O)Pétur gaf mér andlitsbað á föstudeginum og var það alveg hrikalega notalegt og afslappandi. Ég þurfti að vinna smá eftir hádegið en eftir það var farið að taka sig til fyrir hárið í Hörpunni með Huldu og Maju. Hárið var svosem allt í lagi en ekkert meira en á eftir kíktum við á Hressó því hljómsveitin Trums var að spila ..... en það er nafnið á rokkbandinu hans Péturs. Þetta er alveg dúndur band og til mikilla vandræða að ekkert dansgólf er á Hressó svo að maður dillaði sér í sætinu. Við kíktu svo einn snúning á Thorvaldsen svona til að rifja upp gamla takta og taka einn danssnúning. annars vorum við til fyrirmyndar og fórum heim með Pétri um kl 02 en þeir voru að spila til kl 01.
Ég fór svo með Maju norður til að geta hjálpað Möggu að undirbúa afmælið en þau voru nú búin að þessu öllu þegar ég loksins kom.... búin að stoppa í morgunnkaffi hjá Huldu og hafa gaman að einka húmornum mínum því Maja lét Huldu hafa fullt af fötum sem hún getur ekki notað lengur því þau eru of stór á hana og fannst mér þetta rosa fyndið því Hulda er á leið til Parísar og verður lang flottust í fatatískunni frá því í fyrra og hittifyrra....... en þetta er jú bara húmor hjá mér..... fötin voru mjög flott.
Pétur og Arnar komu svo keyrandi á eftir okkur og keyrði Arnar mestapatinn af eliðinni.Pétur náði að fara í æfingar og Arnar náði að sjá Liverpool leikinn svo að þetta fór allt rosa vel og ekki var leiðinlegt hjá okkur Maju.... því get ég lofað:O)
Afmælið var rosa skemmtilegt..... flottur matur og bolla og bjór. Ég og Arnar vorum að keyra saman en við gistum á loftinu í sveitinni í þetta skiptið. Ég þekkti fullt af fólki og hafði mjög gaman af þessu öllu. Kári vildi enga dagskrá .... bara partý og þegar síðustu gestirnir fóru upp úr kl 03 þá voru allir sáttir verð ég að segja. Kári fékk göngugrind frá félögunum ..... med sogröri og bjór, hjartastuðtæki og helstu hægðalyfjum og viakratöflum... þannig að þetta var heljarinnar göngugring og á örugglega eftir að koma sér vel ;o/
Við sváfum rosa vel á loftinu í sveitinni og vöknuðum við þvílíkann steikarailm..... fengum flottasta lambahrygg sem sést hefur"Breytt bak" og eftir kjaftagang kíktum við í Hólabrekku til mömmu og pabba og þaðan út á Krók til Möggu og Kára svona til að kveðja.
Annars er helst að frétta að Sandra og Arnór fengu íbúðina sína á laugardaginn og eru því alveg flutt á Vigerslevvej 113 2tv
2500 Valby
Þau voru búin að fara í Ikea og alveg komin með nóg af þvi en keyptu sér rúm og eldhúsáhöld, svo fundu þau "barnalandssíðu" í Danmark sem selur notað og ódýrt og voru búin að fá sér borð og stóla. Þau ætla að bíða aðeins með sófa og vona að þau finni einhvern þarna ódýrann. Sandra byrjar svo í skólanum (málmsmíðinni) í næstu viku held ég.
Jæja nóg í bili:O)
02. október 2011 klukkan 23:25
Alda Jónsdóttir
Alda Jónsdóttir
