það er bara rekið á eftir manni.......

Maður fær bara að heyra það ef maður bloggar ekki........
Lífið er jú ljúft eftir Ítalíu og maður búin að skoða myndir og endurlifa þetta allt.
Er búin að vera með norska skólakrakka í síðustu viku og búin að ákveða að fara á Laufskálaréttarball..... því að ég vissi að ég yrði að vinna á laugardeginum allan daginn og því væri alveg ákveðið að ég missti af réttini sjálfri. Pétur ætlaði að fara á föstudeginum og vinna eitthvað fyrir norðan en hann hafði svo mikið að gera í vinnunni alla vikuna og nennti því alls ekki að fara að vinna fyrir norðan líka. Það var samt alveg æðislegt að hann nennti með norður þá hafði ég bílstjóra:o) .Ég átti að fara með skólakrakkana í hellaskoðunn og göngu í Búrfellsgjá, en veðrið var rigning og breyttum við um stefnu og fórum Krísuvíkurleiðin og þaðan í Bláa Lónið. Ekki var þetta erfið vinna þennan daginn og brunuðum við beint norður í Varmahlíð en þar voru göngufélagar okkar búnir að bjóða okkur í mat. Klara var búin að hringja nokkru sinnum í mig mjög hress og var mjög gaman hjá henni og vinum hennar á heimleiðinni á hestbaki og hún hélt alveg uppi merkjum okkar því að hún var orðin nokkrum rekstrum á eftir....... frétti reyndar að hún hafi þurft að leggja sig aðeins fyrir ball..... en á ball kom hún. Við höfðum það rosa gaman í matarboðinu í Varmahlíð og var fíflast mikið. Við komum svo við hjá Maju og Sigurjóni á Króknum fyrir ball og skemmtum okkur aðeins meira og komum okkur algjörlega í ballgírinn. Við komum svo á ballið kl 1 og verð ég að segja það að ekki voru margir sem maður þekkti þarna af öllum þessum fjölda. Húsið smá troðfylltist og dansaði ég mæstum allt ballið fyrst við þessa sveittu úr Varmahlíð sem voru hreint út sagt rennandi af svita og í þennanhóp komu líka Klara og Guðrún vinkona hennar og Ásdís og Þórður voru mjög hress eins og alltaf enda búin að vera með Klöru allan daginn. Svo var ég mest að þvælast með Möggu sys, hitti Bright vinkonu Söndru minnar og sá Friðrik vin Söndru en náði ekki að tala við hann.Ásta Knúst skólasystir mín hélt uppi heiðri bekkjarfélaganna minna og svo Stálhnefinn sem var að vinna á ballinu. ..... annars var ekki mikið af gömlum félögum..... meira af unga liðinu. Við vorum á borði með Kára og vinnufélum hans og þar kom líka Guðrún frænka sem var með Grétari á balli. Ég knúsaði alla strákan sem eru jafngamlir Arnari og var frekar sveitt frænka;O/
Við reyndum að hringja í Stebba Halló halló en hann svaraði ekki en Óskar á Steiná bróðir hans var á balli og átti að skila til Stebba að hann væri slappur að láta ekki sjá sig;o)
Annars var stuð á ballinu þó að hljómsveitin spilaði mikið sömu lögin sem eru ekki meðmæli en Von var að spila og höfðu þeir gestasöngvara, Jogvan, Magna, Matta Papa og Siggu Beinteins.
Við gistum hjá Möggu og fengum fína sunnudagssteik áður en við yfirgáfum Krókinn og kíktum í sveitina þar sem nokkrir óklipptir biðu. Þar var fullt af fólki og sáum við Gunsó og Trausta með litla kút, en það er rosa langt síðan við höfum hitt þau.Svo spjölluðum við við strákana sem fengu að vaka til kl 6 því að þeir fengu að koma með Atla heim en hann var að vinna á ballinu........ hann sagði kynlífssögur en það var víst verið að gera do..do í öllum hornum og svo voru ælur upp á öllum bekkjum

Nú er nýr skólahópur tekin við og maður passlega þreyttur í dag
Ég er að fara með Maju og Huldu í Hörpuna á föstudaginn og Pétur er að spila á Hressó með rokkhljómsveitinni þannig að við kíkjum örugglega þangað.
Enn meira síðar:O)

P.s
Sandra mín...... mútta þín fór á miðnæturopnum í Kringlunni og keypti THE peysu....... sendi þér mynd síðar.
knús á ykkur
26. september 2011 klukkan 21:20
Alda Jónsdóttir
Sandra skrifar ...
ohhh....mig langaði að vera memm á balli....
26. september 2011 klukkan 22:03
Klara skrifar ...
hvaða hvaða er eitthvað skrítið þó maður þurfi aðeins að leggja sig?? þetta tekur nú á ;o) hahahhah já Sandra mín því get ég lofað þér að þetta var gaman.....en ég veit þú ert líka að gera eitthvað gaman og réttin er ekkert að fara.........RISAKNÚS á ykkur báðar KH
29. september 2011 klukkan 12:19

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alda Jónsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Um mig: Er kona á besta aldri á manninn Pétur og tvö börn Söndru og Arnar. Vinn sem leiðsögumaður fyrir norðmenn og sem fararstjóri. Hef ýmis áhugamál; ferðalög innan lands og utan ásamt lífinu sjálfu og samskiptum við fólk. Á 13 systkyni og marga vini sem ég reyni að sinna eftir bestu getu.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...