Ítalía...
Nú er maður komin heim eftir aldeilis frábæra ferð til Ítalíu. Þegar ég skildi við ykkur síðast þá vorum við búin með tvo hjóladaga. Við fórum þónokkuð upp síðasta daginn og enginn lenti í neinu veseni....... þess má samt til gamans geta að einu sem duttu á hjólunum var leiðsögumaðurinn sem náði að hoppa af sínu hjóli en ég klaufaðist hrikalega og stagst fram fyrir mig á ENGRI ferð og í bógstaflegri merkingu flækti mig í hjólinu þegar það hlunkaðist yfir mig. Ekkert sér á kerlu fyrir utan nokkra marbletti en ég hefði viljað sjá þetta á myndbandi
Við fluttum okkur yfir til Santa Margreita sem er við austanverðan Liguriraflóann og þá voru töskurnar sem týndust komnar þangað og allir urðu glaðir.....MJÖG glaðir. Þarna byrðjuðum við á því að kaupa osta, pasta, allskonar gummulaði, rautt, hvítt og bjór........ þetta var svo borið niður á strönd og höfðum við strandpartý restina af deginum.......rosalega gaman og gott að smakka þetta allt. Ein kona í hópnum(Lovísa) átti afmæli og hélt ég í upphafi að hún væri fimmtug ..... því Logi hennar gaf henni svo flotta myndavél og var eitthvað verið að apauga með þetta svo að misskilningurinn fór inn í hausinn á mér og nú talar hún ekki meir við mig.........
Það átti að rigna þennan strandag en sú spá rættist ekki ..... hins vegar ringdi daginn eftir sem var einn af skemmtilegustu dögunum. Við silgdum til Portofino sem er einstaklega fallegur bær. Þar hófst göngutúrinn sem átti að vera stuttur og átti að ná í okkur í smá höfn sem er ekki svo langt frá en vegna ölduhæðar og roks þá var það ekki hægt svo að við bara gengum allan daginn og var það alveg frábært, smá rigning og rok sem náði varla inn í skóginn en öldurnar voru miklar þegar við sáum til sjávar.
Við vorum á ÍTALÍU OG LENTUM Í ÞVÍ AÐ EFTIR GÖNGUNA ALLAN DAGINN VORUM VIÐ KOMIN TIL CAMOGLI og áttum að taka rútu heim á hótel þá var rútan farin OF SNEMMA svo að við tókum taxa.
Síðasta daginn fórum við til Cinque Terre sem eru þorpin fimm sem hanga í fjallshlíðunum. Það var hrikalega mikið af fólki í fyrata þorpinu Riomaggiore, allt skítugt og mannmergð hrikaleg en við gengum eftir ástarstígnum yfir í næsta þorp Manarola. Við fórum svo með lest yfir til Corniglia og gengum upp ótal tröppur því það þorp er aðeins upp í hlíðunum svona 300 tröppum ofar. Þetta var flott þorp og alveg 300 trappa virði.
Við tókum svo lestina yfir í Vernazzo og gengum yfir í Monarossa en vegna þess að lestin var svo sein höfðum við ekki mikinn tíma til að skoða sjálf þorpin áður en við tókum lestina heim og nærri beint í kvöldmat.
Hitastigið var alveg dásamlegt og upp og yfir 30 stig og niður í hlýja rigningu.
Allir voru hæðst ánægðir með ferðina þó vildu margir hafa einn loka dag sem hefði farið í strandlíf og búðir á meðan aðris vildu hafa gengið meira og hraðar........ þannig að í heildian var þetta bara frábært.
Við fórum svo 3 tíma í rútu til Mílanó og tókum flug til Köben þar sem að ég hitti Söndruna mína sem var í mikilli krísu því að námið var svo leiðinleg og hún ætlar að hætta og reyna að komast í hönnunarskóla eða eitthvað skemmtilegt ...allavega.
Við þvældumst aðeins um og ég keypti skó og buxur á gamla og peysu á Arnar........ meira var ekki verslað í þessari ferð.
Við lentum svo hér heima kl 21 í gærkveldi og nú er það vinna á morgun......
Alda Jónsdóttir

Kv. dóttirin