allt að gerast

Hér er unnið sem aldrei fyrr  en Pétur hefur verið að vinna mikið undanfarið því Securitas var að opna á nýjum stað og á föstudaginn var komið að því. Ég var að vinna til kl 16 og svo fékk ég nokkrar skvísur í fyrirpartý . Ekki var nú mikið fyrir þeim haft enda bara gaman að hittast. Skellti samt einum osti með mangó chutney og kasjuhneturm í ofninn..... þetta bara sló í gegn enda alltaf jafn gott. Kjartan göngufélagi okkar kíkti stutt við enda á norðurleið í smalamennsku hjá Klöru....... ég heyrði svo í þeim í gær og þá hafði hann ekki séð neina kind í smalamennskunni en hann sá tvær kongulær..... svo að ferðinni var reddað. Þau voru á leiðinni á balll þarna fyrir norðan þegar ég heyrði í þeim og var mikið stuð á mannskapnum:O)

En á föstudaginn fórum við í Securitaspartýið .... fengum móttökur hjá forstjóranum og allar makakonurnar fengu hálsfesti....bara flotta.
Það var dansað og skemmt sér.....Rokkabillibandið að spila og nógur matur sem að við Pétur gleymdum víst alveg að borða.
Við skröngluðumst svo heim kl rúmlega 1 og vorum nokkuð reikul í spori en skemmtum okkur vel. Ég fór svo að vinna um morguninn..... fór í jeppaferð, á sjósleða og að lokum í þyrluflug yfir Gulffos, Geysi og Langjökul. Ekkert smá flott ferð en maginn snérist alveg við í mér þegar ég fór í þyrluna...... hef aldrei getað farið í Tívolítækin og svoleiðis...... þannig að ég var skrýtinn til að byrja með en jafnaði mig fljótt.

Pétur var svo að spila í gær með rokkhljómsveitinni sínni í fyrsta skiptið..... nú man ég ekki nafnið á hljómsveitinni en það kemur síðar. Þeir voru að spila í Grindavík og gekk það bara vel þó að fáir hefu mætt þá komu þeir út í plús.
Jæja ég er að fara að vinna svo að ekki eru fleiri fréttir í bili:O)
11. september 2011 klukkan 09:32
Alda Jónsdóttir

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alda Jónsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Um mig: Er kona á besta aldri á manninn Pétur og tvö börn Söndru og Arnar. Vinn sem leiðsögumaður fyrir norðmenn og sem fararstjóri. Hef ýmis áhugamál; ferðalög innan lands og utan ásamt lífinu sjálfu og samskiptum við fólk. Á 13 systkyni og marga vini sem ég reyni að sinna eftir bestu getu.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...