fréttir af Söndrunni
Tjattaði smá við Söndru í morgunn en þá var hún nýkomin inn á hostel nr 2..... verður þar þar til 8.sept en þá eru þau búin að leigja rándýraíbúð í mánuð þar til þau fá íbúðina hans Sigfúsar bróður sem þau eru búin að leigja í vetur. Þau voru á hostili síðustu nætur og sváfu eitthvað lítið því það var við umferðargötu og alltaf læti.Annars var allt í fína hjá þeim..... nóg að gera í skólanum hjá henni og skólinn hjá Arnóri svona að fara í gang.
Arnar er veikur með kvef og hita en er samt í skólanum..... það er busavika eða nýnemavika hjá honum og endar hún á ferðalagi á föstudaginn þar sem þau gista yfir nótt.
Pétur er að vinna. Securitas ætlar að halda flutningsteiti á föstudaginn og þá á sem mest að vera búið...... held að hann sé samt að vinna fyrir nýju græjunni sem að hann keypti..... eitthvað bassasoundpetalagræja....rosa flott. Hann er svo að spila fyrsta giggið með rokkhljómsveitinni á laugardaginn í Grindavík.....spennandi
06. september 2011 klukkan 23:36
Alda Jónsdóttir
Alda Jónsdóttir
