Ýmislegt og Sandra

Allt í þessu fína hér........ nema helst bloggið sem ég skrifaði í gær og er horfið?????
Rómantíska ristilspegluninn gekk vel. Við föstuðum í tvo daga og var heldur farið að draga af gamla mínum. Ég fór meira að segja í hjólaæfingartúr á sunnudaginn fastandi eftir vinnu og var með nógan kraft. En niðurstaða rannsóknarinnar var sú að allt er í fullkomnu lagi inn í rislinum á okkur báðum og var hann til fyrirmyndar.
Ég hef svo haft nóg að gera verið að guida blindan hóp hvað þá annað og gekk það bara vel. Fórum í Hveragerði og svo Þingvelli og Geysi í dag.
Pétur hefur verið á fullu á æfingum fyrir báðar hljómsveitirnar sem hann er í ..... bæði þessa rólegu og svo rokkbandið sem á að spila í Grindavík 9.sept fyrsta skiptið.....spennandi.
Ég fór á kynningarfund hjá Versló í gær og leist bara vel á þetta allt......bara forvarnir og aftur forvarnir.... heyrir maður.
Fékk svo sms frá Söndru minni áðan og sagði hún að þau væru búin að fá íbúð frá 8 sept, einhver íslensk kona sem leigir þeim og er ég rosa ánægð með það.... ekki síður en þau.

Annars koma Austurríkisgengið um jólin og við erum búin að pannta bústað um áramótin:O)
Knús í bili
02. september 2011 klukkan 15:36
Alda Jónsdóttir

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alda Jónsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Um mig: Er kona á besta aldri á manninn Pétur og tvö börn Söndru og Arnar. Vinn sem leiðsögumaður fyrir norðmenn og sem fararstjóri. Hef ýmis áhugamál; ferðalög innan lands og utan ásamt lífinu sjálfu og samskiptum við fólk. Á 13 systkyni og marga vini sem ég reyni að sinna eftir bestu getu.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...