Sandra flutt út
Það er sama helv.... vesenið með þetta blogg...... maður þarf að margskrifa textann........ arg....Sandra og Arnór fluttu út til Köben í morgunn. Þau tæmdu og þrifu íbúðina sína í gær og komu með eitthvað af dótinu hingað svo að mamma gamla hélt að Sandran væri að flytja heim aftur....... ekki alveg að átta sig á þessu.Þau voru með stórann hjólakassa en arnór var nýbúin að kaupa sér hjól, hefur samt keypt köttinn í sekknum því að þegar átti að pakka því þá kom í ljós að ýmislegt var ekki eins og það átti að vera en í kassa fór það samt. Þau voru svo með sitthvora stóru töskuna og flugfreyjutöskur í handfarangri.... alveg heilmikinn farangur og ég hafði smá áhyggjur af þeim með þetta allt á miða við strætóleiðina sem þau voru búin að finna út á netinu. Maður er jú svo sem búin að þvælast þónokkuð með þessa hjólakassa og þeir eru ekki beint liprir í strætó og hraðlestum. Sandra og Arnór voru búin að fá lánaða íbúð til 5 sept hjá pari sem gekk með okkur Laugaveginn í fyrra og er strðákurinn í skóla með Kolla bróður. Strákurinn var svo frábær að mæta á flugvöllin og sækja þau á stórum sendibíl svo að þetta reddaðist allt rosavel og fékk ég sms þess efnis að þau væru kominn í íbúðina og á leið í partý...... bara allt að gerast.
Arnór byrjar svo í skólanum á miðvikudaginn og Sandra sem er búin að vera í skólanum hér heima alla vikuna en hún fór í uppeldis og menntafræði í HÍ þarf að skila mikilli heimildaritgerð núna fljótlega.
Arnar byrjaði Verslunnarskólanum og er búin að kaupa allar bækur en það hjálpaði Sandra og Pétur honum við á meðan ég spókaði mig í Canada. Hann vann alveg fram að skóla svo að hann á fullt af pening.
Pétur æfir sig á bassan oft núna og er mikið á æfingum því að hann er í sólólögum sem Gummi Jóns gaf út en þeir eru tveir ásamt trommara. Svo eru nokkrir gamlir félagar sem taka gamla rokkslagara sér til skemtunar að æfa líka og fengu þeir Pétur til að vera á bassann og hafur hann bara gaman af því.
Það er nóg að gera hjá mér núna þessa dagana og alveg þangað til að ég fer út til Ítalíu. Ég er búin að vera með þrjá hópa þessa helgina og er alltaf að rekast á einhverja úr þessum hópum sitt á hvað.
Annars erum við Pétur að byrja að fasta því að við förum í ristilspeglun á þriðjudaginn..... ekkert alverlegt, bara fyrirbyggjandi rannsókn. Það er ristilkrabbanein í minni ætt og því gott á láta kíkja á þetta og Pétur vill bara vera öruggur líka...... svona tveir fyrir einn.
27. ágúst 2011 klukkan 23:59
Alda Jónsdóttir
Alda Jónsdóttir
