11október

Get alls ekki sett in texta hér.... eitthvađ bilađ

11. október 2011 klukkan 21:47
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
02október

afmćli Kára og ýmislegt

Frá síðasta bloggi er helst að frétta að skólahópurinn fór sæll og glaður til Kirkenes sem er alveg nyrðst í Noregi og kvaddi ég þau á fimmtudagskvöldið erftir bað í Bláa Lóninu...... ég fór beint í kvennahverfisboð og var það aldeilis ekki leiðinlegt að hitta þennan hressa kvennahóp og ýmislegt var jú planað.... Viðeyjarferð, basar og næsti matarklúbbur:O)

Pétur gaf mér andlitsbað á föstudeginum og var það alveg hrikalega notalegt og afslappandi. Ég þurfti að vinna smá eftir hádegið en eftir það var farið að taka sig til fyrir hárið í Hörpunni með Huldu og Maju. Hárið var svosem allt í lagi en ekkert meira en á eftir kíktum við á Hressó því hljómsveitin Trums var að spila ..... en það er nafnið á rokkbandinu hans Péturs. Þetta er alveg dúndur band og til mikilla vandræða að ekkert dansgólf er á Hressó svo að maður dillaði sér í sætinu. Við kíktu svo einn snúning á Thorvaldsen svona til að rifja upp gamla takta og taka einn danssnúning. annars vorum við til fyrirmyndar og fórum heim með Pétri um kl 02 en þeir voru að spila til kl 01.
Ég fór svo með Maju norður til að geta hjálpað Möggu að undirbúa afmælið en þau voru nú búin að þessu öllu þegar ég loksins kom.... búin að stoppa í morgunnkaffi hjá Huldu og hafa gaman að einka húmornum mínum því Maja lét Huldu hafa fullt af fötum sem hún getur ekki notað lengur því þau eru of stór á hana og fannst mér þetta rosa fyndið því Hulda er á leið til Parísar og verður lang flottust í fatatískunni frá því í fyrra og hittifyrra....... en þetta er jú bara húmor hjá mér..... fötin voru mjög flott.
Pétur og Arnar komu svo keyrandi á eftir okkur og keyrði Arnar mestapatinn af eliðinni.Pétur náði að fara í æfingar og Arnar náði að sjá Liverpool leikinn svo að þetta fór allt rosa vel og ekki var leiðinlegt hjá okkur Maju.... því get ég lofað:O)

Afmælið var rosa skemmtilegt..... flottur matur og bolla og bjór. Ég og Arnar vorum að keyra saman  en við gistum á loftinu í sveitinni í þetta skiptið. Ég þekkti fullt af fólki og hafði mjög gaman af þessu öllu. Kári vildi enga dagskrá .... bara partý og þegar síðustu gestirnir fóru upp úr kl 03 þá voru allir sáttir verð ég að segja. Kári fékk göngugrind frá félögunum ..... med sogröri og bjór, hjartastuðtæki og helstu hægðalyfjum og viakratöflum... þannig að þetta var heljarinnar göngugring og á örugglega eftir að koma sér vel ;o/

Við sváfum rosa vel á loftinu í sveitinni og vöknuðum við þvílíkann steikarailm..... fengum flottasta lambahrygg sem sést hefur"Breytt bak" og eftir kjaftagang kíktum við í Hólabrekku til mömmu og pabba og þaðan út á Krók til Möggu og Kára svona til að kveðja.

Annars er helst að frétta að Sandra og Arnór fengu íbúðina sína á laugardaginn og eru því alveg flutt á Vigerslevvej 113 2tv
2500 Valby
Þau voru búin að fara í Ikea og alveg komin með nóg af þvi en keyptu sér rúm og eldhúsáhöld, svo fundu þau "barnalandssíðu" í Danmark sem selur notað og ódýrt og voru búin að fá sér borð og stóla. Þau ætla að bíða aðeins með sófa og vona að þau finni einhvern þarna ódýrann. Sandra byrjar svo í skólanum (málmsmíðinni) í næstu viku held ég.
Jæja nóg í bili:O)

02. október 2011 klukkan 23:25
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
26september

ţađ er bara rekiđ á eftir manni.......

Maður fær bara að heyra það ef maður bloggar ekki........
Lífið er jú ljúft eftir Ítalíu og maður búin að skoða myndir og endurlifa þetta allt.
Er búin að vera með norska skólakrakka í síðustu viku og búin að ákveða að fara á Laufskálaréttarball..... því að ég vissi að ég yrði að vinna á laugardeginum allan daginn og því væri alveg ákveðið að ég missti af réttini sjálfri. Pétur ætlaði að fara á föstudeginum og vinna eitthvað fyrir norðan en hann hafði svo mikið að gera í vinnunni alla vikuna og nennti því alls ekki að fara að vinna fyrir norðan líka. Það var samt alveg æðislegt að hann nennti með norður þá hafði ég bílstjóra:o) .Ég átti að fara með skólakrakkana í hellaskoðunn og göngu í Búrfellsgjá, en veðrið var rigning og breyttum við um stefnu og fórum Krísuvíkurleiðin og þaðan í Bláa Lónið. Ekki var þetta erfið vinna þennan daginn og brunuðum við beint norður í Varmahlíð en þar voru göngufélagar okkar búnir að bjóða okkur í mat. Klara var búin að hringja nokkru sinnum í mig mjög hress og var mjög gaman hjá henni og vinum hennar á heimleiðinni á hestbaki og hún hélt alveg uppi merkjum okkar því að hún var orðin nokkrum rekstrum á eftir....... frétti reyndar að hún hafi þurft að leggja sig aðeins fyrir ball..... en á ball kom hún. Við höfðum það rosa gaman í matarboðinu í Varmahlíð og var fíflast mikið. Við komum svo við hjá Maju og Sigurjóni á Króknum fyrir ball og skemmtum okkur aðeins meira og komum okkur algjörlega í ballgírinn. Við komum svo á ballið kl 1 og verð ég að segja það að ekki voru margir sem maður þekkti þarna af öllum þessum fjölda. Húsið smá troðfylltist og dansaði ég mæstum allt ballið fyrst við þessa sveittu úr Varmahlíð sem voru hreint út sagt rennandi af svita og í þennanhóp komu líka Klara og Guðrún vinkona hennar og Ásdís og Þórður voru mjög hress eins og alltaf enda búin að vera með Klöru allan daginn. Svo var ég mest að þvælast með Möggu sys, hitti Bright vinkonu Söndru minnar og sá Friðrik vin Söndru en náði ekki að tala við hann.Ásta Knúst skólasystir mín hélt uppi heiðri bekkjarfélaganna minna og svo Stálhnefinn sem var að vinna á ballinu. ..... annars var ekki mikið af gömlum félögum..... meira af unga liðinu. Við vorum á borði með Kára og vinnufélum hans og þar kom líka Guðrún frænka sem var með Grétari á balli. Ég knúsaði alla strákan sem eru jafngamlir Arnari og var frekar sveitt frænka;O/
Við reyndum að hringja í Stebba Halló halló en hann svaraði ekki en Óskar á Steiná bróðir hans var á balli og átti að skila til Stebba að hann væri slappur að láta ekki sjá sig;o)
Annars var stuð á ballinu þó að hljómsveitin spilaði mikið sömu lögin sem eru ekki meðmæli en Von var að spila og höfðu þeir gestasöngvara, Jogvan, Magna, Matta Papa og Siggu Beinteins.
Við gistum hjá Möggu og fengum fína sunnudagssteik áður en við yfirgáfum Krókinn og kíktum í sveitina þar sem nokkrir óklipptir biðu. Þar var fullt af fólki og sáum við Gunsó og Trausta með litla kút, en það er rosa langt síðan við höfum hitt þau.Svo spjölluðum við við strákana sem fengu að vaka til kl 6 því að þeir fengu að koma með Atla heim en hann var að vinna á ballinu........ hann sagði kynlífssögur en það var víst verið að gera do..do í öllum hornum og svo voru ælur upp á öllum bekkjum

Nú er nýr skólahópur tekin við og maður passlega þreyttur í dag
Ég er að fara með Maju og Huldu í Hörpuna á föstudaginn og Pétur er að spila á Hressó með rokkhljómsveitinni þannig að við kíkjum örugglega þangað.
Enn meira síðar:O)

P.s
Sandra mín...... mútta þín fór á miðnæturopnum í Kringlunni og keypti THE peysu....... sendi þér mynd síðar.
knús á ykkur
26. september 2011 klukkan 21:20
Alda Jónsdóttir
2 athugasemdir
21september

Ítalía...

Nú er maður komin heim eftir aldeilis frábæra ferð til Ítalíu. Þegar ég skildi við ykkur síðast þá vorum við  búin með tvo hjóladaga. Við fórum þónokkuð upp síðasta daginn og enginn lenti í neinu veseni....... þess má samt til gamans geta að einu sem duttu á hjólunum var leiðsögumaðurinn sem náði að hoppa af sínu hjóli en ég klaufaðist hrikalega og stagst fram fyrir mig á ENGRI ferð og í bógstaflegri merkingu flækti mig í hjólinu þegar það hlunkaðist yfir mig. Ekkert sér á kerlu fyrir utan nokkra marbletti en ég hefði viljað sjá þetta á myndbandi
Við fluttum okkur yfir til Santa Margreita sem er við austanverðan Liguriraflóann og þá voru töskurnar sem týndust komnar þangað og allir urðu glaðir.....MJÖG glaðir. Þarna byrðjuðum við á því að kaupa osta, pasta, allskonar gummulaði, rautt, hvítt og bjór........ þetta var svo borið niður á strönd og höfðum við strandpartý restina af deginum.......rosalega gaman og gott að smakka þetta allt. Ein kona í hópnum(Lovísa) átti afmæli og hélt ég í upphafi að hún væri fimmtug ..... því Logi hennar gaf henni svo flotta myndavél og var eitthvað verið að apauga með þetta svo að misskilningurinn fór inn í hausinn á mér og nú talar hún ekki meir við mig.........
Það átti að rigna þennan strandag en sú spá rættist ekki ..... hins vegar ringdi daginn eftir sem var einn af skemmtilegustu dögunum. Við silgdum til Portofino sem er einstaklega fallegur bær. Þar hófst göngutúrinn sem átti að vera stuttur og átti að ná í okkur í smá höfn sem er ekki svo langt frá en vegna ölduhæðar og roks þá var það ekki hægt svo að við bara gengum allan daginn og var það alveg frábært, smá rigning og rok sem náði varla inn í skóginn en öldurnar voru miklar þegar við sáum til sjávar.
Við vorum á ÍTALÍU OG LENTUM Í ÞVÍ AÐ EFTIR GÖNGUNA ALLAN DAGINN VORUM VIÐ KOMIN TIL CAMOGLI og áttum að taka rútu heim á hótel þá var rútan farin OF SNEMMA svo að við tókum taxa.
Síðasta daginn fórum við til Cinque Terre sem eru þorpin fimm sem hanga í fjallshlíðunum. Það var hrikalega mikið af fólki í fyrata þorpinu Riomaggiore, allt skítugt og mannmergð hrikaleg en við gengum eftir ástarstígnum yfir í næsta þorp Manarola. Við fórum svo með lest yfir til Corniglia og gengum upp ótal tröppur því það þorp er aðeins upp í hlíðunum svona 300 tröppum ofar. Þetta var flott þorp og alveg 300 trappa virði.
Við tókum svo lestina yfir í Vernazzo og gengum yfir í Monarossa en vegna þess að lestin var svo sein höfðum við ekki mikinn tíma til að skoða sjálf þorpin  áður en við tókum lestina heim og nærri beint í kvöldmat.
Hitastigið var alveg dásamlegt og upp og yfir 30 stig og niður í hlýja rigningu.
Allir voru hæðst ánægðir með ferðina þó vildu margir hafa einn loka dag sem hefði farið í strandlíf og búðir á meðan aðris vildu hafa gengið meira og hraðar........ þannig að í heildian var þetta bara frábært.
Við fórum svo 3 tíma í rútu til Mílanó og tókum flug til Köben þar sem að ég hitti Söndruna mína sem var í mikilli krísu því að námið var svo leiðinleg og hún ætlar að hætta og reyna að komast í hönnunarskóla eða eitthvað skemmtilegt ...allavega.
Við þvældumst aðeins um og ég keypti skó og buxur á gamla og peysu á Arnar........ meira var ekki verslað í þessari ferð.
Við lentum svo hér heima kl 21 í gærkveldi og nú er það vinna á morgun......

21. september 2011 klukkan 18:53
Alda Jónsdóttir
1 athugasemd
15september

bara flott afram

Ekki yfir neinu ad kvarta her hja okkur nema toskurnar ekki komnar.....en her var markadur fyrir utan i morgunn svo ad einhverjir gatu keypt ser nokkra boli og svo er bara tvegid.
Forum i hjolatur upp nokkrar brekkur i dag og gengur tetta rosa vel og er mjog gaman hja okkur. Tetta eru rosa hjol sem ad vid erum a, her er mest farid diwn hill og allir med rosa hlifar svo ad tid getid imyndad ykkur hjolin, reyndar biladi eitt hjolid i dag en verdur vonandi komid i lag a morgunn.
Vid endudum svo i sjonum a sjoreningjastrondinni skal eg ykkur segjai  bla graenum sjonum, tad var samt solarlaust i dag og kom tad ser vel i brekkunum to ad vid fengjum svo sma sol i solbadinu eda sjobadinu. Tad er samt rosa hlytt og notalegt her. Allt gengur sem sagt vel og allir hafa tad gott fyrir utan ahyggjur af toskunum. Vid verdum her i nott og naestu nott svo forum vid a annan stad.
15. september 2011 klukkan 21:48
Alda Jónsdóttir
1 athugasemd
14september

langt ferdalag en bara flott her

Vid komum til Finale seint i gaerkvoldi eftir langt ferdalag og tvaer tyndra toskur..... tad tok okkur einn og halfan tima ad tilkynna toskurnar tyndar og reyna ad hafa upp a teim. Tad bolar ekkert a toskunum........ Gudrun fekk ekki sina tosku med OLLu sinu doti og svo tyndist onnur taska hja hjonum. Allt gengur tetta med samvinnu og hjalp.
Eg hitti Sonduri i Koben tvi eg for med eina tosku til hennar og svo attum vid goda stund a Strikinu adur en vid heldum afram til Milano
Forum flotta en bratta leid hjolandi i dag sem gekk vel og a morgum verda fleiri brekkur og bad i sjonum og allt. Allt hefur semsamt gengid nokkud vel og nuna kl 11 er her 26 gradu hiti svo ad tad er heitt og vis utitekin og saelleg. knus
14. september 2011 klukkan 21:07
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
11september

allt ađ gerast

Hér er unnið sem aldrei fyrr  en Pétur hefur verið að vinna mikið undanfarið því Securitas var að opna á nýjum stað og á föstudaginn var komið að því. Ég var að vinna til kl 16 og svo fékk ég nokkrar skvísur í fyrirpartý . Ekki var nú mikið fyrir þeim haft enda bara gaman að hittast. Skellti samt einum osti með mangó chutney og kasjuhneturm í ofninn..... þetta bara sló í gegn enda alltaf jafn gott. Kjartan göngufélagi okkar kíkti stutt við enda á norðurleið í smalamennsku hjá Klöru....... ég heyrði svo í þeim í gær og þá hafði hann ekki séð neina kind í smalamennskunni en hann sá tvær kongulær..... svo að ferðinni var reddað. Þau voru á leiðinni á balll þarna fyrir norðan þegar ég heyrði í þeim og var mikið stuð á mannskapnum:O)

En á föstudaginn fórum við í Securitaspartýið .... fengum móttökur hjá forstjóranum og allar makakonurnar fengu hálsfesti....bara flotta.
Það var dansað og skemmt sér.....Rokkabillibandið að spila og nógur matur sem að við Pétur gleymdum víst alveg að borða.
Við skröngluðumst svo heim kl rúmlega 1 og vorum nokkuð reikul í spori en skemmtum okkur vel. Ég fór svo að vinna um morguninn..... fór í jeppaferð, á sjósleða og að lokum í þyrluflug yfir Gulffos, Geysi og Langjökul. Ekkert smá flott ferð en maginn snérist alveg við í mér þegar ég fór í þyrluna...... hef aldrei getað farið í Tívolítækin og svoleiðis...... þannig að ég var skrýtinn til að byrja með en jafnaði mig fljótt.

Pétur var svo að spila í gær með rokkhljómsveitinni sínni í fyrsta skiptið..... nú man ég ekki nafnið á hljómsveitinni en það kemur síðar. Þeir voru að spila í Grindavík og gekk það bara vel þó að fáir hefu mætt þá komu þeir út í plús.
Jæja ég er að fara að vinna svo að ekki eru fleiri fréttir í bili:O)
11. september 2011 klukkan 09:32
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
06september

fréttir af Söndrunni

Tjattaði smá við Söndru í morgunn en þá var hún nýkomin inn á hostel nr 2..... verður þar þar til 8.sept en þá eru þau búin að leigja rándýraíbúð í mánuð þar til þau fá íbúðina hans Sigfúsar bróður sem þau eru búin að leigja í vetur. Þau voru á hostili síðustu nætur og sváfu eitthvað lítið því það var við umferðargötu og alltaf læti.
Annars var allt í fína hjá þeim..... nóg að gera í skólanum hjá henni og skólinn hjá Arnóri svona að fara í gang.

Arnar er veikur með kvef og hita en er samt í skólanum..... það er busavika eða nýnemavika hjá honum og endar hún á ferðalagi á föstudaginn þar sem þau gista yfir nótt.

Pétur er að vinna. Securitas ætlar að halda flutningsteiti á föstudaginn og þá á sem mest að vera búið...... held að hann sé samt að vinna fyrir nýju græjunni sem að hann keypti..... eitthvað bassasoundpetalagræja....rosa flott. Hann er svo að spila fyrsta giggið með rokkhljómsveitinni á laugardaginn í Grindavík.....spennandi
06. september 2011 klukkan 23:36
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
02september

Ýmislegt og Sandra

Allt í þessu fína hér........ nema helst bloggið sem ég skrifaði í gær og er horfið?????
Rómantíska ristilspegluninn gekk vel. Við föstuðum í tvo daga og var heldur farið að draga af gamla mínum. Ég fór meira að segja í hjólaæfingartúr á sunnudaginn fastandi eftir vinnu og var með nógan kraft. En niðurstaða rannsóknarinnar var sú að allt er í fullkomnu lagi inn í rislinum á okkur báðum og var hann til fyrirmyndar.
Ég hef svo haft nóg að gera verið að guida blindan hóp hvað þá annað og gekk það bara vel. Fórum í Hveragerði og svo Þingvelli og Geysi í dag.
Pétur hefur verið á fullu á æfingum fyrir báðar hljómsveitirnar sem hann er í ..... bæði þessa rólegu og svo rokkbandið sem á að spila í Grindavík 9.sept fyrsta skiptið.....spennandi.
Ég fór á kynningarfund hjá Versló í gær og leist bara vel á þetta allt......bara forvarnir og aftur forvarnir.... heyrir maður.
Fékk svo sms frá Söndru minni áðan og sagði hún að þau væru búin að fá íbúð frá 8 sept, einhver íslensk kona sem leigir þeim og er ég rosa ánægð með það.... ekki síður en þau.

Annars koma Austurríkisgengið um jólin og við erum búin að pannta bústað um áramótin:O)
Knús í bili
02. september 2011 klukkan 15:36
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd
27ágúst

Sandra flutt út

Það er sama helv.... vesenið með þetta blogg...... maður þarf að margskrifa  textann........ arg....

Sandra og Arnór fluttu út til Köben í morgunn. Þau tæmdu og þrifu íbúðina sína í gær og komu með eitthvað af dótinu hingað svo að mamma gamla hélt að Sandran væri að flytja heim aftur....... ekki alveg að átta sig á þessu.Þau voru með stórann hjólakassa en arnór var nýbúin að kaupa sér hjól, hefur samt keypt köttinn í sekknum því að þegar átti að pakka því þá kom í ljós að ýmislegt var ekki eins og það átti að vera en í kassa fór það samt. Þau voru svo með sitthvora stóru töskuna og flugfreyjutöskur í handfarangri.... alveg heilmikinn farangur og ég hafði smá áhyggjur af þeim með þetta allt á miða við strætóleiðina sem þau voru búin að finna út á netinu. Maður er jú svo sem búin að þvælast þónokkuð með þessa hjólakassa og þeir eru ekki beint liprir í strætó og hraðlestum. Sandra og Arnór voru búin að fá lánaða íbúð til 5 sept hjá pari sem gekk með okkur Laugaveginn í fyrra og er strðákurinn í skóla með Kolla bróður. Strákurinn var svo frábær að mæta á flugvöllin og sækja þau á stórum sendibíl svo að þetta reddaðist allt rosavel og fékk ég sms þess efnis að þau væru kominn í íbúðina og á leið í partý...... bara allt að gerast.
Arnór byrjar svo í skólanum á miðvikudaginn og Sandra sem er búin að vera í skólanum hér heima alla vikuna en hún fór í uppeldis og menntafræði í HÍ þarf að skila mikilli heimildaritgerð núna fljótlega.

Arnar byrjaði Verslunnarskólanum og er búin að kaupa allar bækur en það hjálpaði Sandra og Pétur honum við á meðan ég spókaði mig í Canada. Hann vann alveg fram að skóla svo að hann á fullt af pening.

Pétur æfir sig á bassan oft núna og er mikið á æfingum því að hann er í sólólögum sem Gummi Jóns gaf út en þeir eru tveir ásamt trommara. Svo eru nokkrir gamlir félagar sem taka gamla rokkslagara sér til skemtunar að æfa líka og fengu þeir Pétur til að vera á bassann og hafur hann bara gaman af því.

Það er nóg að gera hjá mér núna þessa dagana og alveg þangað til að ég fer út til Ítalíu. Ég er búin að vera með þrjá hópa þessa helgina og er alltaf að rekast á einhverja úr þessum hópum sitt á hvað.

Annars erum við Pétur að byrja að fasta því að við förum í ristilspeglun á þriðjudaginn..... ekkert alverlegt, bara fyrirbyggjandi rannsókn. Það er ristilkrabbanein í minni ætt og því gott á láta kíkja á þetta og Pétur vill bara vera öruggur líka...... svona tveir fyrir einn.

27. ágúst 2011 klukkan 23:59
Alda Jónsdóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Alda Jónsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Um mig: Er kona á besta aldri á manninn Pétur og tvö börn Söndru og Arnar. Vinn sem leiđsögumađur fyrir norđmenn og sem fararstjóri. Hef ýmis áhugamál; ferđalög innan lands og utan ásamt lífinu sjálfu og samskiptum viđ fólk. Á 13 systkyni og marga vini sem ég reyni ađ sinna eftir bestu getu.

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...